Það styttist óðum í málþing þann 15. október sem er jafnframt fyrsti viðburður MIRA. Þar verður sjónum beint að hnattrænni borgaravitund og hlutverki menntunar við að styðja ungt fólk til virkar þátttöku í samfélaginu.

Eva Harðardóttir, aðalrannsakandi MIRA og lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, kynnir verkefnið, rannsóknarsniðið og samstarfið við íslenska UNESCO-framhaldsskóla.

Dr. Karen Pashby, prófessor við Manchester Metropolitan University, flytur erindi um kennslufræði í anda hnattrænnar borgaravitundar og mikilvægi menntunar til að takast á við flóknar hnattrænar áskoranir.

Að loknum erindum fara fram panelumræður þar sem þátttakendur ræða meðal annars stöðu og framtíð hnattrænnar borgaravitundar í íslensku menntakerfi. Í panel eru:

  • Guðrún Birna Guðmundsdóttir, doktorsnemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
  • Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara
  • Emil Arthúr Júlíusson, forseti Sambands íslenskra háskólanema.
  • Pétur Hjörvar Þorkelsson, hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, stýrir málþinginu og pallborðsumræðum.

Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands slítur þinginu.

15. október 2026 | Auðarsalur, Veröld – hús Vigdísar
Húsið opnar kl. 9:00 og málþing hefst kl. 9:30.

Málþingið er opið öllum og aðgangur er ókeypis. Sérstaklega eru kennarar, stjórnendur, nemendur, rannsakendur, stefnumótandi aðilar og aðrir sem hafa áhuga á menntun, hnattrænni borgaravitund og virkni ungs fólks hvattir til að mæta.

 

 


 

Share