Dagatal

Vinnustofur MIRA

Vinnustofurnar eru ætlaðar kennurum í UNESCO-framhaldsskólum sem taka þátt í rannsókninni. Þar verður unnið með kennurum að kennslufræði hnattrænnar borgaravitundar þar sem þeir fá tækifæri til að kynnast kennslutólinu og læra að nýta það í kennslu. Lagt verður upp úr því að skapa lærdómssamfélag þar sem þátttakendur geta deilt reynslu sinni, hugmyndum og lærdómi. 

Fyrsta vinnustofan verður haldin 15. október að opnunarmálþingi loknu.

Til að fá ítarlegri upplýsingar um vinnustofurnar má hafa samband við aðalrannsakanda, Evu Harðardóttur evahar@hi.is eða 
Pétur Hjörvar Þorkelsson, verkefnastjóra Félags SÞ á Íslandi, petur@un.is.

Share