Forysta í þágu félagslegs réttlætis
MIRA fór formlega af stað með málþingi og fyrstu vinnustofu kennara fimmtudaginn 15. október.
Á málþinginu kynnti Eva Harðardóttir, aðalrannsakandi MIRA, verkefnið og rannsóknaráherslur þess. Hér má nálgast upptöku af erindi Evu.
Dr. Karen Pashby, prófessor við Manchester Metropolitan University, fjallaði um tækifæri og áskoranir menntunar til hnattrænnar borgaravitundar.
Að erindunum loknum tóku Guðrún Birna Guðmundsdóttir, doktorsnemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara, og Emil Arthúr Júlíusson, forseti Sambands íslenskra háskólanema, þátt í pallborðsumræðum. Pétur Hjörvar Þorkelsson, hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, stýrði málþinginu og umræðunum.
Þar var meðal annars rætt um málefni sem brenna á ungu fólki og tækifæri þess til samtals og virkrar þátttöku í samfélaginu. Áhersla var lögð á hvaða stuðning og aðstæður ungt fólk þarf til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hafa áhrif, og ekki síst á hlutverk skóla í því samhengi.
Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, ávarpaði gesti og sleit málþinginu.
Hvernig búum við ungt fólk undir að takast á við áskoranir framtíðarinnar?
Fyrsta vinnustofa MIRA fór fram í Sögu þar sem kennarar kynntust EGIP kennsluhandbókinni undir leiðsögn Karenar Pashby og Evu Harðardóttur.
Kristín Loftsdóttir, mannfræðingur, flutti kveikjuerindi þar sem hún fjallaði um hugtök sem getur verið snúið að beita en eru mikilvæg fyrir skilning í hnattrænum málefnum. Þar á meðal voru misrétti, formgerðir, fordómar, mótun sjálfsmyndar þjóðar, sérstöðuhyggja og hvítleikahugmyndir.
Vinnustofan var sú fyrsta af þremur á tveggja ára tímabili. Markmiðið er að skapa lærdómssamfélag þar sem kennarar deila reynslu sinni, hugmyndum og lærdómi. Samstarfið við kennara teljum við lykilþátt í þróun kennsluhátta sem styðja við borgaralega þátttöku ungmenna.