Frá hugmynd til rannsóknarheitis
Rannsóknin Menntun til hnattrænnar borgaravitundar í íslenskum UNESCO-framhaldsskólum hefur fengið nýtt og styttra heiti: MIRA.
Upphaflegt heiti rannsóknarinnar var nokkuð langt og fljótt varð ljóst að þörf væri á styttra og aðgengilegra heiti. Í stað þess að velja heiti innan rannsóknarteymisins var ákveðið að leita til nemenda í UNESCO-framhaldsskólum.
Nemendum var boðið að senda inn hugmyndir að nýju nafni í mars 2026. Við þökkum öllum þátttakendum í nafnasamkeppninni kærlega fyrir þátttökuna.
Tillagan MIRA varð fyrir valinu en hún barst frá Margréti Hlín Kristjánsdóttur, nemanda við Menntaskólann á Tröllaskaga.
MIRA verður áfram notað sem heiti rannsóknarinnar, bæði hér á landi og í alþjóðlegu samstarfi verkefnisins.
MIRA er stutt og alþjóðlegt heiti sem hefur áhugaverðar merkingar og tengingar í ólíkum tungumálum og menningarheimum.
MIRA
- „að sjá“ eða „líta“ á spænsku
- „friður“ og „heimur“ í slavneskum málum
- tenging við það sem er „undursamlegt“ í latneskum uppruna nafnsins
- nafn á stjörnu, Mira eða Omicron Ceti
Þessar ólíku merkingar og tengingar fléttast á áhugaverðan hátt saman við viðfangsefni rannsóknarinnar. Þar beinum við sjónum okkar að því hvernig við lifum og hrærumst í heiminum með öðrum, myndum tengsl og stuðlum að virkri borgaralegri þátttöku sem vinnur að friðsælli og réttlátari heimi.
Við höfum jafnframt tengt stafina í MIRA við fjórar lykiláherslur verkefnisins:
M – Mannréttindi og mennska á grunni menntunar.
I – Inngildandi samfélag þar sem allir eiga sér stað.
R – Réttlát og jöfn tækifæri til þátttöku.
A – Alþjóðleg tengsl og hnattræn vitund.
Á málstofu okkar þann 15. október verður farið nánar yfir tilkomu heitisins þar sem Margrét Hlín mun hljóta verðlaun fyrir tillöguna.
MIRA verður áfram notað sem heiti rannsóknarinnar bæði hér á landi og á alþjóðlegum vettvangi.