Fyrir hverja eru vinnustofurnar?

Vinnustofurnar eru ætlaðar kennurum í UNESCO-framhaldsskólum sem taka þátt í rannsókninni. Yfirlit yfir þá skólar sem þegar hafa staðfest þátttöku sína má sjá hér. Gert er ráð fyrir 2-3 kennurum úr hverjum skóla. 

Hvað fer fram í vinnustofunum?

Unnið verður með kennurum að kennslufræði hnattrænnar borgaravitundar þar sem þeir fá tækifæri til að kynnast kennslutólinu og læra að nýta það í kennslu. Lagt verður upp úr því að skapa lærdómssamfélag þar sem þátttakendur geta deilt reynslu sinni, hugmyndum og lærdómi.

Hvenær er fyrsta vinnustofan?
Fyrsta vinnustofa MIRA verður haldin 15. október kl. 13:00 í Sögu að opnunarmálþingi loknu. 

Til að fá ítarlegri upplýsingar um vinnustofurnar má hafa samband við aðalrannsakanda, Evu Harðardóttur evahar@hi.is eða Pétur Hjörvar Þorkelsson, verkefnastjóra Félags SÞ á Íslandi, petur@un.is.

Deila